Ovi Maps

Í mörgum gerðum Nokia farsíma er innbyggður GPS staðsetningarmóttakari og í þeim er einnig að finna forrit sem heitir Maps eða Kort - eftir því hvort síminn er stilltur á ensku eða íslensku. Þær upplýsingar og leiðbeiningar sem finna má á þessari síðu miðast við að Nokia-síminn þinn sé stilltur á íslenska valmynd.

Ovi Maps gerir þér kleift að nota símann sem leiðsögu- og staðsetningartæki nánast hvar sem er í heiminum og það án nokkurs kostnaðar. Áður en haldið er af stað í ferðalagið skiptir máli að búið sé að setja inn þau landakort sem á að nota inn í símann.

Þessari vefsíðu er ætlað að kynna þér hvernig það er gert og hvernig nota má forritið enn frekar eins og að senda upplýsingar um staðsetningu með SMS skeyti, leita að veitingastöðum og öðrum áhugaverðum stöðum eða deila eigin staðsetningu á Facebook svo fátt eitt sé nefnt. Leiðbeiningarnar eru settar upp í skrefum hér fyrir neðan:

1. Ovi Maps - fyrstu skrefin | hérna er farið yfir hvað þarf að gera í upphafi til þess að koma Ovi Maps í gang hjá þér. Farið er m.a. yfir hvaða útgáfur af Ovi Maps þurfa að vera í símanum þínum til þess að hægt sé að nýta sér alla kosti Ovi Maps.

2. Valmöguleikar í valmynd - farið er yfir í nákvæmum atriðum hvernig valmyndin virkar í Ovi Maps í Nokia-símanum þínum. Farið er yfir hvernig þú nýtir þér aðgang þinn að Ovi til þess að ná sem mestu út úr Ovi Maps, sýnt hvernig þú skráir þig inn á Facebook til þess að deila staðsetningunni þinni. Að auki er sýnt hvernig maður finnur heimilisfang sem maður vill ganga eða aka til.

3. Aðgangur stofnaður - sýnt hvernig hægt er að stofna aðgang á heimasíðu Ovi, www.ovi.com.

4. Símar sem styðja Ovi Maps - myndrænn listi yfir þá sem styðja nýjustu útgáfuna af Ovi Maps.

Að auki er hægt að smella hér til þess að fá handhæg ráð og ábendingar um það hvernig hægt er að nota Ovi Maps á sem skynsamastan hátt.

Smelltu á þá valmöguleika sem þú vilt skoða annaðhvort í listanum hér fyrir ofan eða á veftrénu hér til hægri. Einnig er hægt að senda á okkur ábendingar og fyrirspurnir með því að smella hér.