Hvernig stofna ég aðgang?
Til að byrja með:
Til þess að nýta sér möguleika Ovi Maps þarf að búa sér til aðgang á www.ovi.com.

Þegar búið er að smella á 'Register' inn á heimasíðu Ovi kemur þessi gluggi upp, mikilvægt er að fylla út í alla reitina til þess að tryggja örugga skráningu. Eins getur verið gott að nota lykilorð sem er auðvelt að muna og gleymist ekki auðveldlega.

Eftir nýskráningu færðu sendan staðfestingarpóst í pósthóflið þar sem staðfesta þarf áskriftina. Að skráningu lokinni getur þú skráð þig inn á www.ovi.com og nýtt þér alla þá þjónustu sem þar er í boði frá Nokia. Einnig notar þú þessa skráningu til þess að skrá þig inn í gegnum Ovi Suite og inn í Ovi Maps í Nokia-símanum þínum.
