Nýjustu fréttir tengdar Ovi frá Nokia

2. febrúar 2011 - Nokia hefur sent frá sér uppfærslu á Ovi Maps-forritinu og er það útgáfa 3.06. Þessi útgáfa er m.a. sérhönnuð fyrir nýjustu útgáfuna af Symbian-stýrikerfinu og er hægt að nota tvo putta til þess að draga inn á kortið og eins til að draga út.

Einnig er búið að gera umtalsverðar breytingar á því hvernig maður getur deilt staðsetningu sinni og hvaða upplýsingar birtast um t.d. veitingastaðinn sem maður er á þegar maður skráir inn staðsetninguna sína.

Hægt er að nálgast nýjustu útgáfuna með því að tengja símann þinn við tölvuna og uppfæra hann í gegnum Ovi Suite. Við mælum með að notuð sé nýjasta útgáfan af Ovi Suite sem er útgáfa 3.0.

Auk þess er hægt að sjá hér umfjöllin Nokia-bloggsins um þessa nýjustu útgáfu af Ovi Maps.

25. janúar 2011 - Nýjasta útgáfan af Ovi Suite er komin út og er það útgáfa 3.0 sem er í boði nú. Helstu breytingar snúa þá helst að því að Ovi Store er orðin mun meira áberandi í Ovi Suite en verið hefur og er hægt að sjá hvaða forrit eru í boði fyrir símann þinn á upphafsskjánum í Ovi Suite. Einnig er búið að bæta umtalsvert tónlistarvirknina í Ovi Suite og er t.d. hægt að láta Ovi Suite sjá um alla tónlistina í tölvunni þinni.

Hægt er að nálgast nýjustu útgáfuna af Ovi Suite með því að smella hér.