Þeir símar sem styðja nýjustu útgáfuna af Ovi Maps geta nálgast GPS-kort með raddleiðsögn ókeypis. Aðrar uppfærslur á kortum og leiðsögn kosta heldur ekki neitt þannig að Ovi Maps er ókeypis lausn fyrir þá sem eiga Nokia-síma sem styðja þessa lausn.
Hafa ber þó í huga að ef maður tengir Ovi Maps við Netið í gegnum símann, þá fer síminn að hlaða niður kortagögnum í gegnum Netið. Ef þú ert með kortið sem þú ert að skoða nú þegar vistað inn í símann þá koma ekki nein ný kortagögn inn á símann, hinsvegar ef þú ert á stað þar sem engin kortagögn eru fyrir símanum þá hleður síminn þeim niður og vistar. Oft geta slík gögn verið talsverð og sumir kortagrunnar taka eru margir tugir af megabætum að stærð.
Ef ferðast er erlendis, þá margfaldast þessi kostnaður og getur því verið sárt að koma heim eftir vel heppnaða ferð með háan símreikning sem bíður eftir heima. Til þess að slökkva á netvirkni Ovi Maps þá er eftirfarandi gert:
![]() |
![]() |
![]() |
| Farðu inn í Stillingar með því að smella á skiptilykilinn |
Veldu Internet |
Veldu Tenging |
![]() |
![]() |
|
| Hérna er síðan hægt að velja hvort að Netið sé tengt eða aftengt |
Á kortaskjánum er hægt að sjá hvað er búið að hlaða mikið af gögnum í símann |





