Til þess að geta notað Ovi Maps í símanum þínum þarf síminn í fyrsta lagi að bjóða upp á þann möguleika að nota GPS landakort. Þú getur smellt hér og ef þinn sími er á þessum lista þá styður hann Ovi Maps og frítt Íslandskort.
Ovi Suite í tölvuna þína
Til þess að nýta sér möguleika Ovi Maps þarf að búa sér til aðgang á www.ovi.com. Eftir nýskráningu færðu sendan staðfestingarpóst í pósthólfið hjá þér. Opnaðu póstinn og fylgdu leiðbeiningunum sem þar koma fram og staðfestu áskriftina. Að skráningu lokinni getur þú skoðað öll þau kort sem þú vilt, sett inn leiðir og vistað staði sem þú munt nota eða vilt finna.
Smelltu hér og náðu þér í nýjustu útgáfuna af Ovi Suite.
Fylgdu leiðbeiningunum um uppsetningu og settu forritið upp á tölvunni hjá þér og ræstu forritið. Þá ættir þú að sjá forritið birtast eins og á myndinni hér til hliðar.
Það næsta sem þú þarft að gera er að tengja farsímann þinn við tölvuna. Hægt er að tengja símann við tölvuna/Ovi Suite annars vegar með því að nota þráðlausa Bluetooth tengingu eða með USB kapli sem er töluvert betri tenging og raunar nauðsynleg þegar flytja á plássmikil gögn eins og tónlist, kvikmyndir eða landakort.
Nokia Ovi Suite er heildarsamskiptaforrit fyrir PC-tölvur sem sér um öll samskipti milli tölvunnar og Nokia-síma. Með Ovi Suite er hægt að setja upp forrit í símanum, nálgast uppfærslur, setja inn tónlist og myndskeið, taka út myndir, vinna með gögn á borð við tengiliði og SMS-skilaboð o.s.frv. Hægt er að nálgast þau kort sem maður vill með því að nota Ovi Suite. Þegar búið er að tengja Nokia-símann þinn við Ovi Suite þá þarftu að gera eftirfarandi (smelltu myndina til að sjá skýringar):
1. Smelltu á Ovi Maps táknið í Ovi Suite
2. Veldu Evrópu
3. Veldu síðan Ísland úr listanum
4. Veldu síðan Download og þá hefst niðurhal á kortinu niður í Nokia-símann þinn
5. Til þess að fá raddleiðsögn, smelltu hér og veldu það tungumál sem þú vilt
6. Hægt er að skoða þau kort sem eru komin inn á símann með því að smella hér.
Athugið að ef Ísland birtist ekki í listanum þá getur það verið vegna þess að Ovi Suite sjái bara gömul kortagögn í símanum þínum. Ef þú smellir á textann 'Updated maps available' vinstri megin í forritinu fyrir miðju þá fer síminn í að uppfæra þau kortagögn sem eru í símanum. Þetta er ferli sem getur tekið allt upp undir klukkutíma þar sem verið er að eyða út eldri kortagögnum og setja þau aftur inni. Kortin sem þá koma inn eru uppfærð með nýjustu upplýsingum sem og önnur lönd sem voru ekki inni áður eiga að birtast eins og t.d. Ísland.
Ovi Maps í símanum
Áður en lengra er haldið þarf að ganga úr skugga um að rétt útgáfa af Ovi Maps sé í símanum. Munurinn á nýrri og eldri gerð Ovi Maps er sá að eldri gerðir styðja ekki við t.d. ókeypis raddleiðsögn, samtengingu við Facebook og nýjustu landakortin en Ísland er einmitt þeirra á meðal.
Ef útgáfan af Ovi Maps í símanum þínum lítur út eins og skjámyndin hér til hliðar þá ertu með rétta útgáfu. Sé forritið í símanum þínum EKKI með þessu útliti, eins og myndin til hliðar, þá þarf að uppfæra forritið í símanum.
Þurfir þú að uppfæra forritið, þá er einfaldasta leiðin að því í gegnum Ovi Suite. Opnaðu Ovi Suite og tengdu símann við með USB snúru. Veldu Tools > Software updates.
Þá dregur Ovi Suite niður nýjan glugga og hefst handa við að leita að nýjum uppfærslum fyrir bæði Ovi Suite og fyrir símann sjálfan. Finnist uppfærslur, skal velja Install.
Eftir það ætti allt að vera uppfært samkvæmt nýjustu útfærslum af bæði forritum og stýrikerfi símans og þú getur farið og náð í frítt Íslandskort eða önnur kort.
Í valmyndinni fyrir Ovi Maps í símanum þínum eru nokkrar táknmyndir fyrir mismunandi aðgerðir, hérna fyrir neðan er listi yfir helstu aðgerðir og sömuleiðis leiðbeiningar um það hvernig maður nýtir helstu kosti Ovi Maps (smelltu á myndina til þess að stækka hana:
1. Núverandi staðsetning - hérna sérðu hvar þú ert
2. Finna staði - hægt að leita eftir heimilisfangi, áhugaverðum stað o.s.frv.
3. Deila staðsetningu - tenging við Facebook, hægt að taka mynd og setja inn texta ásamt staðsetningu
4. Uppáhalds - þínir uppáhaldsstaðir sem þú hefur vistað inn og hægt að samstilla við Ovi
5. Akstur - veldu þennan valmöguleika til þess að fá leiðsögn við akstur
6. Ganga - veldu þennan valmöguleika til þess að fá leiðsögn á göngu
7. Veður - veðurupplýsingar um þann stað sem þú ert á núna ásamt veðri næstu daga
8. Viðburðir - sýnir áhugaverða viðburði eins og kvikmyndasýningar, tónleika o.fl út frá staðsetningunni þinni
9. Lonely Planet - upplýsingar um þá borg og land sem þú ert í hverju sinni
10. Fleira - viðbótarforrit sem hægt er að setja upp í valmyndinni
11. Stillingar - helstu stillingar sem hægt er að breyta í Ovi Maps
12. Upplýsingar - helstu atriði um Ovi Maps sem og athugasemdakerfi fyrir notendur
13. Hætta - smelltu hérna ef þú vilt fara út úr Ovi Maps
Viltu sjá hvernig valmyndin í Ovi Maps virkar í símanum þínum? Smelltu hér til þess að halda áfram!
smelltu efst á valmyndinni þar
sem stendur 'Skráðu þig inn' og
þá færðu þessa valmynd upp.
