Helstu valmöguleikar í Ovi Maps
Ovi Maps í Nokia-símanum þínum
Valmyndin í Ovi Maps í Nokia-símanum þínum er mjög myndræn og þægileg í notkun. Líkt og aðrir valkostir í Nokia-símanum þínum þá er Ovi Maps-valmyndin einnig á íslensku ef maður er með stillt á íslenska valmynd í símanum. Hér fyrir neðan er farið yfir helstu atriðin sem snýr að því að nota Ovi Maps í símanum þínum. Leiðbeiningarnar eru ekki tæmandi en ættu þó að gefa góða mynd að því hvernig Ovi Maps virkar:
| Innskráning í gegnum Ovi og inn á Facebook | ||
|
|
|
![]() |
| Til þess að skrá sig inn á Ovi, smelltu efst á valmyndinni þar sem stendur 'Skráðu þig inn' |
Ef þú ert með aðgang að Ovi, velur þá 'Skrá inn', annarsvelur þú 'Stofna áskrift |
Þegar búið er að stofna aðgang þá setur þú inn notandanafnið og lykilorðið og hakar við 'Muna eftir mér' |
|
|
|
|
| Þegar búið er að skrá sig inn er hægt að stilla innskráninguna og jafnframt hægt að fjarlægja núgildandi áskrift | Hægt er síðan að stilla m.a. aðgang að Facebook til þess að deila staðsetningunni sinni |
Síðan skráir þú þig inn með sama tölvupóstfangi og lykilorði og þú notar á Facebook |
| Að nota Ovi Maps til þess að komast á áfangastað | ||
|
|
|
![]() |
| Þegar þú velur 'Núverandi staðsetning þá kemur mynd staðetningunni þinni sem er auðkennd með rauðum depli með ljósrauðum hring í kring | Hægt er að fá upp fleiri kortavalmöguleika með því að smella á tannhjólin neðst til vinstri og m.a. hægt að skoða gervitunglamynd af kortinu | Til þess að leita að heimilisfangi eða áhugaverðum stað, smelltu niðri á 'Leita'og þá kemur leitarglugginn upp |
|
|
|
|
| Ef smellt er á 'Leita eftir flokkum' þá birtast þeir efnisflokkar sem eru vistaðir inn á kortinu og hægt að skoða hvern flokk fyrir sig | Ef við hinsvegar sláum inn leitartextann sjálf, t.d. 'Laugardalslaug' þá gerum við það með lyklaborðinu og smellum á stækkunarglerið til hliðar eða veljum Enter á lyklaborðinu | Í þessu tilfelli er Nokia-síminn stilltur á að leita eftir niðurstöðum á Netinu. Við mælum með því að Ovi Maps leiti á Netinu þar sem gagnagrunnur hjá Nokia er nákvæmari en sá sem fylgir með kortinu sem hlaðið er inn á símann |
|
|
|
|
| Leitin skilar síðan leitarniðurstöðum út frá flokkunum og þar sjáum við að Laugardalslaugin er flokkuð undir þremur flokkum. Best er að velja það sem er efst | Þegar búið er að velja úr listanum þá birtist staðurinn á kortinu ásamt heiti hans og götustaðsetning efst á skjánum |
Hægt er síðan að velja punktinn, annaðhvort með því að velja hann af skjánum eða halda miðjutakkanum inni. Hægt er þá velja t.d. að vista staðinn, ganga eða aka þangað o.s.frv. |
| Að ganga eða aka beint | ||
|
|
|
|
| Ef hinsvegar á að ganga beint á einhvern stað eða aka þangað þá er valið 'Akstur' eða 'Ganga' úr valmyndinni og þá koma þessir þrír valkostir upp: Keyra heim, Velja áfangastað eða Kort | Mest notaða virknin við akstur eða göngu er 'Velja áfangastað' og þegar það er valið koma fjórir valkostir upp: Farnar slóðir, Uppáhalds, Leita eða Af korti | Ef við ákveðum að leita eftir áfangastað þá veljum við 'Leita' og sláum inn staðinn sem við viljum fara á. Í þessu tilfelli ætlum við niður á Austurvöll. |
|
|
|
|
| Leitarniðurstöðurnar koma síðan upp og maður velur staðinn sem maður vill fara á, hvort sem það er gangandi eða akandi | Ovi Maps reynir síðan að ná GPS-sambandi og þá kemur kortið upp í þrívíddarham og sýnir hvert þú átt að fara |
Hægt er að smella á 'Valkosti' neðst til vinstri og þá kemur upp aukavalmynd með mörgum valmöguleikum sem hægt er að nota á meðan ferðinni stendur |
| Aukaforrit í Ovi Maps-valmyndinni |
||
|
|
|
|
| Neðst í valmyndinni er hægt að finna aukaforrit sem hjálpa þér á ferðinni, hvar sem er í heiminum | Hægt er að velja aukaforritin úr valmyndinni, hafðu samt í huga að forritin tengja sig við Netið til þess að hlaða niður upplýsingum | Veður er eins og nafnið bendir til veðurforrit sem sýnir hvernig veðrið er þar sem þú ert staðsettur hverju sinni |
|
|
|
|
| Viðburðir er forrit sem nær í upplýsingar um kvikmyndasýningar, leiksýningar og tónleika út frá staðsetningunni þinni | Lonely Planet er handhægur leiðarvísir með áhugaverðum upplýsingum um það land og þá borg sem þú ert í hverju sinni | |
| Aðrar stillingar | ||
|
|
|
|
| Í valmyndinni er hægt að velja 'Uppáhalds' og sjá þá staði sem maður hefur vistað í símann. Hægt er að samstilla þessa staði við Ovi þannig að ef maður fær nýjan síma í framtíðinni þá er nóg fyrir mann að skrá sig inn og samstilla og þá eru allir uppáhaldsstaðirnir komnir inn í símann | Hægt er að komast í stillingar fyrir Ovi Maps með því að smella á skiptilykilinn neðst til vinstri. Þarna er m.a. hægt að setja inn netstillingar, raddleiðsögn og margt fleira | |




























